,,Þetta er geðveikt fyrir klúbbinn,“ sagði Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings eftir að Kári Árnason hafði skrifað undir hjá félaginu.
Kári gerði í dag eins og hálfs árs samning við félagið. Kári er að koma heim í Víkina, eftir 15 ár í atvinnumennsku.
Varnarmaðurinn er í dag byrjunarliðsmaður í íslenska A-landsliðinu, styrkurinn er mikill fyrir Víking.
,,Hann var með á æfingu í gær, það var eitthvað annað sem kom með. Það hefur verið góð stemming og allt það, en það var eitthvað annað. Maður sér alltaf þegar svona leikmenn koma á æfingu, aðrir vilja stíga upp og sanna sig.“
Viðtalið við Kára er í heild hér að neðan.