Ensk götublöð halda því fram í dag að David Brooks, miðjumaður Bournemouth sé á óskalista Manchester United.
Sagt er að Ole Gunnar Solskjær horfi til Brooks. Ander Herrera hefur yfirgefið félagið og líklegt er að Paul Pogba verði seldur.
United þarf því að styrkja miðsvæði sitt í sumar og Brooks vakti athygli, með Bournemouth á síðustu leiktíð.
Þessi 21 árs gamli miðjumaður mun hins vegar kosta í kringum 50 milljónir punda. Hátt verð fyrir ungan dreng.
Brooks spilar fyrir Wales en hann ólst upp hjá Manchester City.