Joe Hart, markvörður Burnley hefur vakið athygli fyrir nýtt húðflúr á öxlinni. Með Burnley leikur, Jóhann Berg Guðmundsson.
Húðflúrið hefur ekki fengið góða dóma, um er að ræða flúr sem er alveg svart yfir alla öxl hans. Þetta er kallað „Body armour“
,,Ég veit að það eru ekki allir sem fá sér svona, smekkur fólks er misjafn en þetta er hluti af mér,“ sagði Hart.
Markvörðurinn var að klára sitt fyrsta tímabil með Burnley en gæti yfirgefið félagið í sumar.
Flúrið má sjá hér að neðan.