fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
433Sport

Logi segir Vesturbæinn sofa: Segja ekkert „Stórveldið þeirra stendur ekki í lappirnar gegn hatursorðræðu“

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 14. júní 2019 12:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Björgvin Stefánsson, þarf að taka út fimm leikja bann fyrir rasísk ummæli. KR hafði áfrýjað dómnum en því var hafnað, dómur aga og úrskurðarnefndar KSÍ stendur.

Björgvin sá um að lýsa leik Hauka og Þróttar R. á Haukar TVí Inkasso-deild karla á dögunum. Björgvin er fyrrum leikmaður Hauka en hann tjáði sig um leikmann Þróttar, Archange Nkumu. ,,Þetta er það sem ég er alltaf að segja, það er svo stutt í villimannseðlið hjá svarta manninum,“ sagði Björgvin.

Logi Pedró Stefánsson, tónlistarmaður er ósátur með KR-inga, hvernig stuðningsmenn og félagið hafa tekið á málinu. ,,Undanfarnar vikur hafa fjölmiðlar fjallað mikið um ummæli Björgvins Stefánssonar og kynþáttaníð sem hann lét falla í beinni útsendingu á vefmiðlinum Haukar TV. Óþarfi er að hafa þau ummæli eftir honum en fyrir áhugasama er tiltölulega auðvelt að finna þau. Aganefnd KSÍ tók málið fyrir og dómur féll í síðustu viku – 5 leikja bann,“ skrifar Logi í pistli sem hann birtir.

Logi furðar sig á því að KR hafi í raun viljað að Björgvin fengi ekki bann, og að félagið hafi áfrýjað dómnum.

,,Þetta mál allt saman er merkilegt og hægt er að rýna mikið í það, enda vakti þetta upp mikil viðbrögð. Það sem kemur undirrituðum þó helst á óvart í þessu máli eru viðbrögð Knattspyrnufélags Reykjavíkur, sem og stuðningsmanna þeirra. KR fór fram á það að aganefnd KSÍ vísaði málinu frá og að leikmanninum yrði ekki gerð refsing. Eins áfrýjaði KR dómnum sem féll, en áfrýjunardómstóll KSÍ staðfesti hins vegar dóminn.“

,,Ummælin eru eins og þau eru og við erum að berja dauðan hest ef við ræðum þau frekar. Óafsakanlegt kynþáttaníð sett fram í misheppnaðri kímni. Eins er það skýrt samkvæmt reglum KSÍ að við broti þar sem kynþáttaníð kemur fram er refsing, að lágmarki, 5 leikja bann..“

Logi gagnrýnir Rúnar Kristinsson, þjálfara KR, nokkuð harkalega. Segir hann hafa talað málið niður.

,,En einhverja hluta vegna reyna KRingar hins vegar að komast hjá því að taka út refsingu, og Rúnar Kristinsson þjálfari félagsins talar alvarleika brotsins og hugsanlegar afleiðingar niður í viðtali við fjölmiðla nokkrum dögum eftir atvikið. Hann talar um fordæmi sem aganefnd KSÍ hefur sett. Eins tekur hann þá ákvörðun að spila leikmanninn í fyrsta leik eftir atvikið. Enginn skal efast um það að Rúnar Kristinsson er fínn náungi, fyrrum landsliðshetja og leiðtogi. Hann baðst afsökunar á ummælunum fyrir hönd félagsins, rétt eins og KR, en eftirfylgnin var þó önnur. Og þvílíkt sem þjálfara KR, sem og félaginu, fatast flugið í þessu máli.“

,,Umræðan um það hvernig KSÍ tæki á atvikinu fór einhverra hluta vegna að snúast um fordæmi sem aganefnd KSÍ hafði sett í fyrri dómum. Eins og það væri sjálfsagt að sleppa við refsingu á svona skýru broti, með tilliti til fyrri dóma. En verum skýr hérna: Allt tal um fordæmi aganefndar er þvættingur. Svona umbúðalaust kynþáttaníð hefur ekki komið fram síðustu ár í íslenskum fótbolta, og hvað þá dokúmenterað svona vel – orð fyrir orð á upptöku.“

Logi furðar sig á því að stuðningsmenn KR séu ekki að gagnrýna félagið og viðbrögð þess.

,,Það sem hefði verið fínt í þessu blessaða máli, sem hefði mátt afgreiða á einni viku, væri að taka ábyrgð á þessum ummælum. En að tala brotið niður, fara fram á enga refsingu og áfrýja svo dómnum er versta mögulega vegferð sem KR gat lagt í. Eins vekur það furðu hversu litla gagnrýni stuðningsmenn KR hafa sett fram á sitt ástkæra félag. Hvernig getur það verið að allur vesturbærinn sofi og segi ekki neitt þegar að stórveldið þeirra stendur ekki í lappirnar gegn hatursorðræðu?.“

Pistil Loga má lesa hérna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Atvik í Fossvogi sem sást í beinni útsendingu vakti furðu – Rikka G fannst þetta mjög skrýtið

Atvik í Fossvogi sem sást í beinni útsendingu vakti furðu – Rikka G fannst þetta mjög skrýtið
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Ætla með málið lengra – Báðu hann um að drepa sig og sungu um að hann væri nauðgari

Ætla með málið lengra – Báðu hann um að drepa sig og sungu um að hann væri nauðgari
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Sancho þénaði sturlaðar upphæðir utan vallar á síðustu leiktíð

Sancho þénaði sturlaðar upphæðir utan vallar á síðustu leiktíð
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Þvílík endurkoma – Sjáðu markið sem stjarna Arsenal skoraði eftir margra mánaða fjarveru

Þvílík endurkoma – Sjáðu markið sem stjarna Arsenal skoraði eftir margra mánaða fjarveru
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Munu setja sig í samband við De Bruyne á ný

Munu setja sig í samband við De Bruyne á ný
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Var aldrei nálægt samkomulagi við Liverpool

Var aldrei nálægt samkomulagi við Liverpool