Íslenska karlalandsliðið vann gríðarlega mikilvægan sigur í gær er við spiluðum við Tyrki í undankeppni EM. Ísland þurfti í raun á sigri að halda í leik gærkvöldsins til að minnka bilið í baráttunni um efstu tvö sæti riðilsins. Ísland mætti sterkt til leiks á Laugardalsvelli og var staðan fljótt orðin 2-0 fyrir strákunum.
Ragnar Sigurðsson gerði bæði mörk Íslands eftir fast leikatriði með stuttu millibili og staðan 2-0 í fyrri hálfleik. Undir lok hálfleiksins minnkuðu Tyrkir svo muninn með skalla eftir hornspyrnu og staðan í leikhléi 2-1.
Það var rólegra yfir leiknum í seinni hálfleik þar sem engin mörk voru skoruð og lokatölur 2-1 fyrir okkar mönnum. Ísland er nú með jafn mörg stig og Frakkar og Tyrkir en með verri markatölu í þriðja sæti riðilsins.
Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði þjóðar þakkar fyrir sig á Instagram í dag. ,,Takk fyrir stuðninginn, við þurftum svo sannralega á honum að halda,“ sagði Aron.
,,Þegar við stöndum saman sem þjóð er allt hægt.“