Ísland mætir Tyrklandi í kvöld í undankeppni EM 2020. Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli og hefst kl. 18:45.
Strákarnir mættu Albaníu á laugardaginn og unnu þar góðan 1-0 sigur með marki frá Jóhanni Berg Guðmundssyni.
Þetta er í 12 skipti sem liðin mætast. Ísland hefur unnið sjö leiki, tveir hafa endað með jafntefli og tveir með sigri Tyrklands.
Ísland mætti Tyrklandi síðast haustið 2017, og fór þar með langt með að tryggja sig inn á HM í Rússlandi.
Ísland vann þá 3-0 sigur á útivelli, ein besta frammistaða sem íslenska landsliðið hefur átt.
Myndband úr leiknum er hér að neðan.