Tyrkland er nú búið að fá á sig sitt fyrsta mark í undankeppni EM 2020 og það kom í kvöld gegn Íslandi.
Tyrkir höfðu haldið hreinu í fyrstu þremur leikjum sínum áður en þeir mættu á Laugardalsvöll í kvöld.
Ísland er komið í 1-0 þegar 22 mínútur eru búnar en Ragnar Sigurðsson skoraði mark íslenska liðsins.
Jóhann Berg Guðmundsson átti frábæra sendingu inn í teig þar sem Raggi Sig var mættur og skallaði knöttinn í netið.
Fallegt mark sem má sjá hér.
İzlanda 1-0 Türkiye (Ragnar Sigurdsson)
.
Maçı canlı izlemek için @futbolsantracom sayfasını takip edin
RT YAPMAYI UNUTMAYIN.#HaydiTürkiye #türkiye #HaydiMilliTakım #izlanda #izlandayıüzelim #ICEvsTUR pic.twitter.com/4b5vDYmKvU— GOL TV (@goltvhd) June 11, 2019