Tottenham er komið í úrslit Meistaradeildarinnar eftir stórkostlegan leik við Ajax í undanúrslitum í kvöld.
Tottenham var 1-0 undir fyrir seinni leik kvöldsins og lenti svo 2-0 undir í fyrri hálfleik í Hollandi.
Lucas Moura nennti ekki að kveðja strax og skoraði svo þrennu í seinni hálfleik og vann Tottenham 3-2 sigur.
Síðasta mark Lucas kom á 95. mínútu leiksins og tryggir það mark liðinu farseðilinn í úrslitin.
Fyrrum körfuboltahetjan Steve Nash er mikill stuðningsmaður Tottenham en hann starfar einnig sem sérfræðingur hjá Bleacher Report.
Nash missti sig heldur betur eftir lokamark Lucas í kvöld og fengu nokkur tár að falla fyrir framan myndavélina.
The reaction from huge Tottenham fan @SteveNash when that goal went in ? pic.twitter.com/g0NRmIVdY6
— B/R Football (@brfootball) 8 May 2019