fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
433Sport

Næsta gullkynslóð? – ,,Andri Lucas Guðjohnsen getur náð langt“

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 3. maí 2019 12:00

Davíð Snorri.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Davíð Snorri Jónasson, þjálfari U17 ára landsliðsins, hefur verið að gera frábæra hluti með þessa yngstu kynslóð sem kemur fram fyrir þjóðina. Davíð er með góðan aðstoðarmann í Þorvaldi Örlygssyni en liðið heldur nú í lokakeppni EM 2019. Keppnin er haldin á Írlandi dagana 3.–19. maí. Ísland er þar í riðli með Portúgal, Ungverjalandi og Rússlandi. Strákarnir mæta Rússlandi í fyrsta leik sínum í riðlinum laugardaginn 4. maí.

Búa til landsliðsmenn framtíðar
Yngri landslið eru fyrst og síðast vettvangur til að búa til A-landsliðsmenn framtíðarinnar og að ná árangri í yngri landsliðum getur hjálpað til. Það hefur gullkynslóð okkar sannað, sem farið hefur á Evrópu- og heimsmeistaramót á síðustu árum. Þar höfðu flestir leikmenn farið á lokamót með yngri landsliðum. „Ég held að þetta hjálpi okkur, þú þarft að fara langa leið til að komast hingað. Við höfum staðið okkur mjög vel, það væri frábært að geta gert þetta á hverju ári. Þetta mun hjálpa okkur að búa til framtíðarlandsliðsmenn,“ sagði Davíð þegar blaðamaður ræddi við hann og bað hann að lýsa leikmönnum sínum.

„Þetta eru fyrst og fremst mjög duglegir leikmenn, þeir hafa tekið miklum framförum á þessu ári sem við höfum verið saman. Það er klúbbunum þeirra að þakka og síðan eru þeir hungraðir í að verða betri í fótbolta, þeir vilja ná langt.“

Ungir drengir þurfa að bíta í súrt epli
Davíð hafði spilað 29 leikmönnum í undirbúningi fyrir mótið, en níu af þeim þurftu að bíta í það súra epli að verða ekki valdir í lokahóp. Það getur reynst ungum drengjum erfiður biti að kyngja. „Við erum búnir að spila í fimm mótum, það eru 29 leikmenn sem hafa spilað á þessari leið á Evrópumótið. Það vildu allir vera með í þessum lokahóp, það eru leikmenn sem eru utan hóps. Þeir eru meðvitaðir um að þeir geti komið inn ef eitthvað gerist, þannig er fótboltinn. Þetta er hluti af því að læra, stundum ertu á bekknum, stundum í byrjunarliðinu og stundum utan hóps. Ég vona innilega að þeir sem eru utan hóps, hugsi ekki að þetta sé endastöð.“

KSÍ leggur mikið í verkefnið
KSÍ setur mikla fjármuni í verkefnið og það sést best í því að 15 manna starfsliðs verður með liðinu á mótinu, umgjörðin er fyrsta flokks. „Það væri skemmtilegt, það er fullt af litlum gulrótum í þessu. Það er frábær draumur sem við getum horft til. Ég er mjög ánægður með það starfslið sem KSÍ gefur leyfi til að taka með, við erum iðulega átta starfsmenn í svona ferð. Núna fáum við auka sjúkraþjálfara og fjölmiðlafulltrúa, og svo Víði Reynisson öryggisfulltrúa. Hann hefur séð um að skipuleggja allt. Ég er mjög þakklátur KSÍ fyrir stuðninginn við okkur.“

Leikmaðurinn sem allir eru spenntir fyrir:
Andri Lucas Guðjohnsen, sonur Eiðs Smára og leikmaður Real Madrid, er sá drengur sem flestir fylgjast með. Davíð Snorri vill lítið ræða um hæfileika hans og framtíð. „Andri hefur búið erlendis og spilar á Spáni í dag, hann er eins og hinir leikmenn liðsins. Mjög sterkur andlega, vill ná langt og vill verða góður. Leikmennirnir í þessum hóp eru allir eins, þeir vilja ná lengra en að bara spila.  Andri getur náð langt eins og aðrir í hópnum, þeir eru hungraðir í ná langt.“

Stjörnur liðsins

Ísak Bergmann Jóhannesson (Miðjumaður – 2003)
Það virðist ekki vera svo langt í að íslenska landsliðið nýti sér krafta Ísaks. Þessi öflugi miðjumaður á ekki langt að sækja hæfileikana. Jóhannes Karl Guðjónsson, faðir hans, átti afar farsælan feril á meðal þeirra bestu. Ísak lék einn leik með ÍA áður en hann var seldur til IFK Norrköping í vetur, þar er hann ekki langt frá aðalliði félagsins. Ísak lék með aðalliðinu í æfingaferð á dögunum og gæti spilað í efstu deild Svíþjóðar á komandi leiktíð. Hann á eftir að taka út líkamlega styrkinn en skilur leikinn betur en flestir.

Andri Lucas Guðjohnsen (Sóknarmaður – 2002)

Eftirnafnið gerir alla spennta, en það ætti að forðast að setja einhverja auka pressu á kauða, þrátt fyrir afrekin sem faðir hans, Eiður Smári, vann á ferli sínum. Andri Lucas virðist vera fæddur markaskorari og hann leikur í dag með Real Madrid. Hann verður 17 ára á þessu ári og er orðinn lykilmaður í U19 ára landsliðinu. Gera má ráð fyrir að hann verði kallaður inn í U21 árs landsliðið í næsta verkefni og svo ætti að styttast í tækifærið með A-landsliðinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Besta deild kvenna fer af stað með látum á sunnudag

Besta deild kvenna fer af stað með látum á sunnudag
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Þetta stendur á veggnum þegar leikmenn City fara á æfingar

Þetta stendur á veggnum þegar leikmenn City fara á æfingar
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Leikmaður United ákærður fyrir tvö brot – Mætti fyrir dómara í dag en neitar sök

Leikmaður United ákærður fyrir tvö brot – Mætti fyrir dómara í dag en neitar sök
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Pétur Theódór snýr aftur heim til Gróttu eftir erfið meiðsli

Pétur Theódór snýr aftur heim til Gróttu eftir erfið meiðsli
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Arteta sagður skoða þessa tvo framherja fyrir sumarið

Arteta sagður skoða þessa tvo framherja fyrir sumarið
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Hetja Bayern sökuð um að gera grín að haltrandi leikmanni Arsenal

Hetja Bayern sökuð um að gera grín að haltrandi leikmanni Arsenal
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Ríkharð segir þetta ástæðu þess að KSÍ hefur ekki ráðið framkvæmarstjóra – „Hún er byrjuð í annarri vinnu og þiggur laun þar“

Ríkharð segir þetta ástæðu þess að KSÍ hefur ekki ráðið framkvæmarstjóra – „Hún er byrjuð í annarri vinnu og þiggur laun þar“
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Leikmaður Arsenal talar ekkert við Arteta

Leikmaður Arsenal talar ekkert við Arteta
433Sport
Í gær

Norski áhrifavaldurinn nú komin með athyglisverðan titil – Sjáðu nýjustu myndir hennar

Norski áhrifavaldurinn nú komin með athyglisverðan titil – Sjáðu nýjustu myndir hennar