Stoke ætlar að rifta samningi sínum við Saido Berahino eftir að hann keyrði fullur. Kappinn hafði logið til um veikindi og sökum þess mætti hann ekki á æfingu.
Kappinn var ekki mikið veikur, hann bara á djamminu í London þar sem hann var gómaður af lögreglunni, undir stýri.
Berahino fékk 30 mánaða akstursbann og þurfti að greiða 75 þúsund pund í sekt.
Berahino var á VQ staðnum í London en hann fullyrðir að glæpagengi hafi ráðist á sig fyrir utan staðinn. Rándýrt úr sem hann hafði á hendinni var stolið og hann kveðst hafa verið að flýja.
Berahino sagði við lögregluna að gengið hafi einnig reynt að stela lyklunum af bílnum hans en hann hafi komist í burtu. Hann hafi síðan ákveðið að flýja vettvang með því að setjast undir stýri og koma sér í burtu.