Mauricio Pochettino, stjóri Tottenham, er kannski að undirbúa sig fyrir úrslitaleik Meistaradeildarinnar en hefur þó tíma í að horfa á sjónvarpið.
Pochettino sá sjötta og lokaþátt Game of Thrones á dögunum sem olli heldur betur vonbrigðum.
Argentínumaðurinn nýtti tímann á blaðamannafundi í gær og kvartaði yfir því hvernig þáttaröðinni lauk.
,,Ég er svo vonsvikinn. Ég var vonsvikinn með fimmta þáttinn. Þetta var magnaður þáttur en síðasta serían var meira svona: ‘við þurfum að klára þetta, en hvernig?‘ sagði Pochettino.
,,Ég veit það ekki, þetta var óskiljanlegt. Það var ekkert sem hélst í hendur í þessu. Ég held að við séum öll sammála um það.“
,,Það er held ég enginn ánægður með það hvernig þáttaröðin endaði.“