Valur reynir að semja við Gary Martin um starfsflok við félagið. Fótbolti.net segir frá.
Gary hefur ekki fengið að æfa með Val frá því að 433.is greindi frá því að félagið vildi losna við hann.
Tíðindin koma talsvert á óvart því ekki eru nema rúmir fjórir mánuðir síðan að Valur setti allt sitt traust á breska framherjann. ,,Ég er búinn að tilkynna honum að hann megi finna sér nýtt félag, Gary er fínn drengur og búinn að standa sig vel. Hann hentar ekki okkar leikstíl,“ sagði Ólafur Jóhannesson þjálfari Vals í samtali við 433.is.
Þetta er í eina skiptið sem Ólafur hefur tjáð sig um málið, síðan þá hefur hann ekki viljað ræða það.
Gary er með samning við Val til ársloka 2021, það gæti því reynst dýrt fyrir Val að semja um starfslok við hann. Samningurinn er langur og ljóst er að Gary er einn launahæsti leikmaður deildarinnar.
Hannes Þór Halldórsson, ræðir málið við Morgunblaðið. Hefur það truflað liðið?
„Nei, það finnst mér ekki. Auðvitað er þetta rætt eins og annars staðar,“ sagði Hannes við mbl.is.
,,Þetta er þarna en síðan þetta mál kom upp höfum við unnið einn leik og spilað fínan leik á móti FH. Þetta hefur því ekki haft nein áhrif og ég held að það muni ekki gera það,“ sagði Hannes.