Manchester United og Liverpool gætu fengið að Matthijs de Ligt, fyrirliða Ajax í sumar ef marka má fréttir dagsins.
Flestir töldu að De Ligt færi til Barcelona en tilboð félagsins er langt frá því, sem De Ligt getur fengið á Englandi.
Manchester United og Liverpool hafa áhuga á þessum öfluga leikmanni, Börsungar geta ekki boðið honum sömu laun.
Mino Raiola, umboðmaður hans hefur látið Börsunga vita af þessu en félagið kveðst ekki geta borgað meira.
Þetta opnar dyrnar fyrir ensku félögin en De Ligt er í hópi bestu varnarmanna í heimi í dag.