Breiðablik 0-1 ÍA
0-1 Einar Logi Einarsson(90′)
Síðasta leik dagsins í Pepsi Max-deild karla er nú lokið en Breiðablik fékk þá ÍA í heimsókn.
Um var að ræða tvö efstu lið deildarinnar en þau voru bæði með tíu stig eftir fjórar umferðir.
Leikur kvöldsins var ágæt skemmtun en aðeins eitt mark var skorað og það gerðu gestirnir.
Einar Logi Einarsson gerði það mark fyrir ÍA í uppbótartíma eftir hornspyrnu.
Skagamenn eru því nú með þriggja stiga forskot á toppnum eftir fimm umferðir.