Sunderland er komið í úrslitaleikinn í umspili um laust sæti í ensku Championship-deildinni.
Liðið lék við Portsmouth í undanúrslitum í kvöld en leiknum lauk með markalausu jafntefli.
Fyrri leiknum lauk með 1-0 sigri Sunderland og fer liðið því áfram í úrslitaleikinn.
Portsmouth gæti verið í veseni eftir hegðun stuðningsmanns í garð leikmanns Sunderland.
Leikmaðurinn datt fyrir aftan auglýsingaskilti vallarins eftir að hafa barist um boltann.
Þá ákvað heimskur stuðningsmaður að sparka í leikmanninn á meðan aðrir reyndu að hjálpa honum upp.
Myndband af þessu má sjá hér.
#Portsmouth fan kicking a #Sunderland player?! Disgraceful. #EFLPlayOffs #pompey #sunderland #league1 #football #skysports pic.twitter.com/arAxEmFWSl
— James (@rando__) 16 May 2019