Stærsta og vinsælasta íþróttakeppni á Íslandi hefst um helgina þegar Pepsi Max-deild karla fer af stað.
Um er að ræða efstu deild karla í knattspyrnu og að mati margra er þessi vinsælasta íþrótt í heimi vorboðinn ljúfi.
12 lið eru í deildinni líkt og síðustu ár. Hart verður barist á toppnum en ekki síður á botninum.
Góður markaskorari er það sem getur skorið úr um það, hvort lið verður Íslandsmeistari eða ekki. Hvort lið falli úr deildinni eða ekki.
Hér að neðan eru fimm líklegstu leikmenn deildarinnar að okkar mati sem munu berjast um gullskóinn.
Besti markaskorari deildarinnar, Patrick Pedersen er farinn frá Val og því kemur nýr maður til með að vinna gullskóinn.
Thomas Mikkelsen (Breiðablik)
Gary Martin (Valur)
Tobias Thomsen (KR)
Hilmar Árni Halldórsson (Stjarnan)
Geoffrey Castillion (Fylkir)