Stuðningsmenn Juventus á Ítalíu eru heldur betur óánægðir eftir mynd sem birtist á internetið í gær.
Mynd var lekið á netið af nýrri treyju Juventus sem félagið mun spila í á næstu leiktíð.
Það er óhætt að segja það að treyjan sé frábrugðin þeim sem félagið hefur notast við undanfarin ár.
Mynd birtist af þeim Paulo Dybala og Federico Bernardeschi þar sem þeir klæðast nýjum heimatreyjum liðsins.
Dæmi nú hver fyrir sig en stuðningsmenn eru alls ekki ánægðir með valið.