Luke Shaw, leikmaður Manchester United, hefur nefnt þann leikmann sem enginn kemur nálægt á æfingum.
Shaw segir að leikmenn United forðist varnarmanninn Marcos Rojo sem er harður í horn að taka.
Rojo fær ekki mikið að spila þessa dagana en hann lætur ávallt finna fyrir sér á æfingasvæðinu.
,,Það hlýtur að vera Marcos Rojo. Það fer enginn nálægt honum á æfingum. Hann er harðhausinn í liðinu,“ sagði Shaw.
,,Á æfingum er hann örugglega í jörðinni 90 prósent af tímanun að tækla með takkana á lofti svo allir vilja halda sig frá honum.“
,,Hann er bara einn af þeim, þú verður að leyfa þetta því hann er bara svona.“