Ofurtölvan sem hefur gert garðinn frægan fyrir misjafna spádóma sína hefur spáð fyrir um, hvernig toppbaráttan á Englandi endar.
Stuðningsmenn Liverpool telja líklega að tölvan ljúgi, því er spáð að liðið geri eitt jafntefli, í síðustu fjórum leikjunum.
Þannig verður Manchester City meistari en Manchester United grætur einnig þessa spá. Því er spáð að liðið nái ekki Meistaradeildarsæti.
Svona endar deildin ef Ofurtölvan hefur rétt fyrir sér.
Lokastaðan:
1. Man City – 96 stig
2. Liverpool – 95 stig
3. Tottenham – 76 stig
4. Arsenal – 75 stig
5. Chelsea – 73 stig
6. Manchester United – 73 stig