Jose Mourinho, fyrrum stjóri Manchester United segir að hræðilegt hafi verið að horfa á varnarleik liðsins gegn Barcelona.
Stjórinn horfði á leikinn hjá sínu gamla félagi en Mourinho stýrði United fyrir jól
,,Það voru mörg mistök, mikið af mörkum og hræðilegur varnarleikur,“ sagði Mourinho.
,,Þú horfir á markið hjá Coutinho og Messi einnig. United breytti um stíl frá fyrri leiknum, þeir voru þéttari á miðsvæðinu í fyrri leiknum og bjuggu þá til búr fyrir Messi. Messi kemur frá hægri, er svo eftir á miðsvæðinu og Rakitic er þá að verjast fyrir hann.“
,,United notaði aðra aðferð í seinni leiknum, vegna þess að liðið tapaði fyrri leiknum.“
,,Pogba var settur út til vinstri, McTominay meira til hægri og Fred var einn að verja vörnina. Þá er Messi einn, á einn. Þá ertu dauður, ég vil aldrei verjast einn gegn Messi. Þú reynir að búa til búr fyrir hann.“