Það kom ekki mörgum á óvart að Hannes Þór Halldórsson, hafi skrifað undir hjá Val í Pepsi deild karla í vikunni. Þetta var leyndarmál sem byrjaði að heyrast í janúar, nú hefur það verið opinberað.
Hannes er líklega stærsta nafnið sem komið hefur heim í Pepsi deildina, hann er besti markvörður Íslands og eitt stærsta nafnið í íslenska karlalandsliðinu sem hefur náð mögnuðum árangri.
„Það þarf varla að spila þetta Íslandsmót!“ Viðbrögð á borð við þessi mátti heyra eftir að verst geymda leyndarmál vetrarins var opinberað í fyrradag,“ skrifar blaðamaðurinn virti, Víðir Sigurðsson í Morgunblaðið í dag.
,,Hannes Þór Halldórsson landsliðsmarkvörður í fótbolta er kominn heim eftir sex ár erlendis og búinn að semja við Íslandsmeistara Vals. Til hvorki meira né minna en fjögurra ára. Það er ár og dagur síðan íslenskt lið var með í sínum röðum tvo fastamenn úr landsliðinu,“ skrifar Víðir og bendir á þá staðreynd að Birkir Már Sævarsson er í herbúðum Vals.
,,Það flokkast líklega undir „sturlaða staðreynd“ að tveir úr byrjunarliði Íslands á HM í Rússlandi skuli nú leika með Hlíðarendaliðinu. Valsmenn eru stórtækir um þessar mundir. Náðu í Helenu í körfuboltanum, nú í Hannes í fótboltanum og segja einfaldlega við aðra: Til að vinna titla þurfið þið að vinna okkur.“
,,Og fyrst Hannes er til umræðu þá er gaman að geta þess að hagyrðingurinn og fyrrverandi knattspyrnudómarinn Bragi V. Bergmann er búinn að gefa út nýja bók með limrum sem heitir: „Limrur fyrir land og þjóð.“
,,Þar kemur Hannes við sögu en Bragi var í Moskvu þegar Ísland mætti Argentínu og upplifði þar stærstu stund Íslands á HM. Líklega í fótboltasögunni. Úr því varð að sjálfsögðu limra sem hljóðar þannig.“
Hannes Þór Halldórsson er
hetja sem lofa ber.
Á línunni þegir,
að lokum hann segir:
„Messi, því miður.“ – Og ver!