fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
433Sport

Íslenskir landsliðsmenn blanda sér í umræðuna: ,,Ætti að vera mál fyrir barnaverndarnefnd“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 6. mars 2019 13:30

Mynd: KSÍ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á síðustu dögum hefur verið staðfest að fjórir eru smitaðir af mislingum hér á landi. Smitin eru rakin til erlends smitbera sem flaug með flugvél Icelandair til landins þann 14. febrúar síðastliðinn og síðan áfram til Egilsstaða næsta dag. Landsliðsmenn í knattspyrnu blanda sér í umræðuna.

Ekki hafa greinst fleiri mislingasmit samtímis hér á landi síðan 1977. Neyðarfundur var hjá sóttvarnarlækni í gær vegna stöðunnar og Landspítalinn er með mikinn viðbúnað.

Mislingar eru bráðsmitandi. Á árunum 1998 til 2017 greindust aðeins þrjú tilfelli mislinga hér á landi. Fjögur smit á skömmum tíma eru því mikil breyting.

Bólusetningar við mislingum hefjast við átján mánaða aldur hér á landi og því hafa ung börn litla vörn gegn sjúkdómnum. Það hefur síðan færst í aukana að fólk bólusetur sig ekki, og bólusetji börnin sín ekki Af þessu hafa margir áhyggjur að börn séu ekki bólusett í jafn miklum mæli eins og var áður.


,,Það þyrfti helst að sekta foreldra sem bólusetja ekki börnin sín! Það eru engin tengsl á milli einhverfu og bólusetninga,“ skrifar Theodór Elmar Bjarnason, landsliðsmaður í knattspyrnu og leikmaður Gazişehir Gaziantep um bólusetningu barna.

Birkir Már Sævarsson, bakvörður íslenska landliðsins er á sama máli og vill ganga langt í svona málum. ,,Ætti að vera mál fyrir barnaverndarnefnd að mínu mati,“ sagði Birkir um málið.

Hver er þín skoðun á þessu máli?

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Ten Hag mun lækka duglega í launum verði hann áfram á næstu leiktíð

Ten Hag mun lækka duglega í launum verði hann áfram á næstu leiktíð
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

KSÍ segir samtalið um Laugardalsvöll jákvætt

KSÍ segir samtalið um Laugardalsvöll jákvætt
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Leggur til að United ráði Roy Keane til starfa í sumar

Leggur til að United ráði Roy Keane til starfa í sumar
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Beitir Ólafsson úr KR í HK

Beitir Ólafsson úr KR í HK
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Ofurtölvan stokkar spilin eftir magnaðan sigur Arsenal – Óvænt tíðindi

Ofurtölvan stokkar spilin eftir magnaðan sigur Arsenal – Óvænt tíðindi
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Toddi fundaði með Infantino í París – Þessi mál voru á dagskrá

Toddi fundaði með Infantino í París – Þessi mál voru á dagskrá
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Eiginkonan umdeilda tjáði sig í gærkvöldi – Hefur áður kallað eftir brottrekstri

Eiginkonan umdeilda tjáði sig í gærkvöldi – Hefur áður kallað eftir brottrekstri
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Svona er tölfræðin hjá Slot sem er sagður taka við Liverpool í sumar

Svona er tölfræðin hjá Slot sem er sagður taka við Liverpool í sumar
433Sport
Í gær

Búist við að fjöldinn allur komi saman úr skápnum í næsta mánuði

Búist við að fjöldinn allur komi saman úr skápnum í næsta mánuði