Hörður Magnússon, heldur áfram sem skipstjóri í Pepsi-marka skútunni en þátturinn breytir um nafn líkt og deildin, heitir nú Pepsi Max-mörkin.
Hörður hefur stýrt þættinum um langt skeið af sinni alkunnu snilld.
,,Tveir nýir sérfræðingar verða í teyminu í sumar sem hafa ekki verið áður. Það eru annars vegar Atli Viðar Björnsson og Þorkell Máni Pétursson,“ segir á Vísir.is.
Þá verða Reynir Leósson, Þorvaldur Örlygsson, Logi Ólafsson og Hallbera Guðný Gísladóttir í þættinum.
Pepsi deildin fer af stað eftir um mánuð en deildin verður afar spennandi í ár.