Craig Bellamy, fyrrum leikmaður Liverpool, var handtekinn þann 9. mars síðastliðinn í Cardiff í Wales.
Bellamy hefur ávallt verið smá vandræðagemsi en hann kom sér ófáum sinnum í fréttirnar sem leikmaður.
Hann hefur nú misst bílprófið í annað sinn en hann var stöðvaður af lögreglunni fyrr í mánuðinum fyrir ölvunarakstur.
Bellamy viðurkenndi mistökin og má nú ekki keyra næstu 18 mánuðina og fékk þá 650 pund í sekt.
Bellamy hefur undanfarin ár starfað fyrir sjónvarpsstöðvina Sky Sports síðan skórnir fóru á hilluna.
Samkvæmt fregnum hafði Bellamy drukkið áfengi um daginn og ætlaði sér aldrei að keyra um kvöldið en tók ranga ákvörðun að lokum.