Íslenska karlalandsliðið vann sterkan sigur í undankeppni EM í kvöld er liðið mætti Andorra.
Leikur kvöldsins fór fram á heimavelli Andorra og höfðu strákarnir betur með tveimur mörkum gegn engu.
Um var að ræða fyrsta leik strákanna í undankeppninni og var gríðarlega mikilvægt að taka þrjú stig.
Ísland komst yfir í fyrri hálfleik með marki frá Birki Bjarnasyni en hann skoraði þá eftir hornspyrnu.
Staðan var 1-0 þar til í síðari hálfleik er Viðar Örn Kjartansson bætti við öðru marki en hann hafði komið inná sem varamaður.
Þjóðin var að venju að fylgjast með leiknum og hér fyrir neðan má sjá nokkur skemmtileg tíst sem birtust í kvöld.
Hahaha Vökin er eins og Balotelli, búinn að ákveða fögnin áður en hann kemur inn á völlinn! Geggjað slútt ??
— Auðunn Blöndal (@Auddib) 22 March 2019
Þetta fagn hjá Viðari var reyndar frábært ?
— Davíð Már (@DavidMarKrist) 22 March 2019
Takk Vökvél, takk. Þvílíkt slútt!
— Kolbeinn Tumi (@kolbeinntumi) 22 March 2019
Möl, lélegt gervigras eða gras. Ísland á alltaf að vinna með 2-3 mörkum. Annað er ekki boðlegt.
— Henry Birgir (@henrybirgir) 22 March 2019
Er þetta í alvörunni besti fótbolti sem við höfum upp á að bjóða? #ANDISL pic.twitter.com/x6TBcbmpIU
— Þórunn (@thorunnf15) 22 March 2019
Heimaleikurinn verður sem sagt isl-and? #andisl #island pic.twitter.com/Qgib4QI7Vx
— Daniel Thor (@danskithor) 22 March 2019
Elska þessa gæja. Áfram Ísland #andisl
— Sindri Birgis (@SindriBirgis) 22 March 2019
LOKSINS kom sigur. Til hamingju drengir! #KSÍ #ANDISL
— Hrafnkell Sigurðsson (@hrafnkellsig) 22 March 2019
„Voðalega er þetta eitthvað langur leikur.“ – @unnurmargret #andisl
— Magnús Sigurðsson (@Sigurdsson) 22 March 2019
Viðar fær ekki breik. #andisl pic.twitter.com/thjpMSiWDU
— Óskar Eiríksson (@oskarei) 22 March 2019
3 góðir punktar á blað nú er að gefa líf og sál á móti Frökkum í París á mánudaginn #ANDISL
— Axel Bragi Andrésson (@BragiAxel) 22 March 2019
Vel gert Viðar Örn! Geggjaður! #fotboltinet #ANDISL #ksi
— Ellert I. Hafsteinss (@Ellertingi) 22 March 2019
Steinþegiði! #ANDISL #ViðarÖrn
— Hrafnkell Sigurðsson (@hrafnkellsig) 22 March 2019
“Hvað eruð þið að gera maður? Við erum búnir að tala um þetta hundrað sinnum!” – Ragnar Sigurðsson #andisl #ruv #ruvsport
— Aron Tomas (@arontomas1) 22 March 2019
Er Bruce Willis fyrirliðinn hjá Andorra #ANDISL
— Þröstur Jóhannesson (@ThrosturJoh) 22 March 2019