Viðar Örn Kjartansson komst á blað fyrir íslenska landsliðið í kvöld er liðið mætti Andorra ytra.
Um var að ræða leik í undankeppni EM en Viðar skoraði seinna mark Íslands í góðum 2-0 sigri.
Viðar hefur verið í umræðunni undanfarið en hann var óvænt kallaður í hópinn fyrir verkefnið.
Framherjinn hafði áður gefið það út að hann væri hættur að spila með landsliðinu en ákvað að taka boði landsliðsþjálfarana um að snúa aftur.
Viðar sendi Íslendingum skýr skilaboð eftir mark sitt í kvöld en hann hefur legið undir töluverðri gagnrýni.
Kjartan Henry Finnbogason var á meðal þeirra sem gagnrýndu ákvörðunina að kalla Viðar til baka frekar en að hann fengi tækifæri.
Kjartan setti inn Twitter-færslu á dögunum þar sem mátti sjá broskall með rennilás fyrir munninn.
Viðar fagnaði á sama hátt og þóttist vera að renna fyrir munninn á sér. Skilaboðin því skýr til Kjartans.
Kjartan sá að sjálfsögu leikinn í kvöld en hann segir að þarna sé aðeins um grín að ræða á milli vina.
,,Toppmaður og geggjað slútt. Smá banter á milli vina og allt fera á hliðina. Hann hætti samt við að hætta við,“ skrifaði Kjartan.
Gott grín á milli vina en hér fyrir neðan má sjá færslu Kjartans.
Slakiði á, ég kveikti bara aðeins í stórvini mínum @Vidarkjartans . Toppmaður og geggjað slútt. Smá banter á milli vina, og allt fer á hliðina? Hann hætti samt við að hætta við ?♂️ #sigtasalta
— Kjartan Henry (@kjahfin) 22 March 2019