Sophie Jones, leikmaður Sheffield United, hefur verið rekin frá félaginu eftir ákæru frá enska knattspyrnusambandinu.
Jones spilaði með Sheffield gegn Tottenham þann 6. janúar og var með kynþáttarfordóma í garð Renee Hector, leikmanns Tottenham.
Jones var fundin sek af knattspyrnusambandinu og var sektuð um 200 pund. Hún hefur ávallt neitað allri sök.
Sheffield var ekki lengi að taka á málinu og ákvaðað reka Jones sem átti ekki mikið eftir af samningi sínum.
Hún tók sjálf illa í þessar fréttir og ákvað í kjölfarið að leggja skóna á hilluna í mótmælaskyni.
Sophie segist ekki getað unnið með sambandi sem hún treystir ekki og mun nú einbeita sér að öðru í framtíðinni.
Jones er aðeins 27 ára gömul og átti nóg eftir af ferli sínum. Hvort ákvörðunin sé endanleg verður að koma í ljós.