Alexandra Mendez, fyrirsæta frá Venezúela fór í viðtal á Spáni þar sem hún fór að sýna skilaboð sem Cristiano Ronaldo, einn besti íþróttamaður í heimi var að senda henni.
Það sem vekur mesta athygli er að skilaboðin eru þriggja ára gömul og var Ronaldo leikmaður Real Madrid á þeim tíma.
Ronaldo var einhleypur þegar hann sendi Mendez skilaboðin sem hún talaði um í sjónvarpsviðtali.
Ronaldo sendi Mendez fyrst skilaboð á Instagram og fékk símanúmerið hennar og fór að senda henni skilaboð á Whatsapp.
Ronaldo var að fara að spila og sendi skilaboð. ,,Ef ég skora má ég þá naga á þér rassinn?,“ skrifaði Ronaldo.
Ronaldo er trúlofaður Georgina Rodriguez í dag en það vekur athygli að Mendez sé að fara með svona gömul skilaboð í fjölmiðla.
Hér að neðan má sjá fleiri myndir af Mendez sem fór í viðtalið en hún sagðist ekki hafa gert neitt kynferðislegt með Ronaldo.