fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
433Sport

Áfram fær Geir slæmar pillur: ,,Gerði ekki skít“

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 8. febrúar 2019 09:24

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Geir Þorsteinsson berst fyrir því að að gerast formaður KSÍ á nýjan leik en er í baráttu við Guðna Bergsson. Ársþing KSÍ fer fram á laugardaginn og kemur þá í ljóst hvor mun hafa betur, Geir eða Guðni.

Guðni þykir mun líklegri fyrir laugardaginn en hann fékk 88% atkvæða í könnun Stöðvar 2. Margir knattspyrnumenn hafa opinberlega stutt við bakið á Guðna sem hefur sinnt starfinu síðustu tvö ár.

Hann tók við af Geir fyrir tveimur árum en sá síðarnefndi ákvað svo að bjóða sig fram á ný. Geir var gagnrýndur af landsliðskonunum Söru Björk Gunnarsdóttur og Dagný Brynjarsdóttur í gær.

Geir þykir ekki hafa sýnt kvennalandsliðinu mikinn áhuga á þeim tíma sem hann var í stjórn, annað en Guðni.

Fyrrum landsliðsmaðurinn Hallgrímur Jónasson er einnig á meðal þeirra sem vilja ekki sjá Geir fá starfið á ný.

Nú var Garðar Örn Hinriksson, fyrrum dómari að stíga fram og láta sína skoðun á Geir í ljós.

,,Ekki gerði hann mikið fyrir íslenska knattspyrnudómara heldur. Þekki ekki þann sem situr núna við völd en andskotinn hafi það, hann getur ekki verið verri en sá sem sat í stólnum áður,“ skrifar Garðar.

Hann segir að Geir hafi ekki gert skít, dómarar hafi ekki verið merkilegir í hans augum.

,,Hann var annar varaformaður í dómaranefnd UEFA. Það breytti engu. Hann hefði getað gert svo margt fyrir okkur en gerði ekki skít. Við vorum nógu góðir að við töldum en ekki nógu merkilegir í hans augum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Knattspyrnusambandið íhugar að banna félögum alfarið að gera þetta

Knattspyrnusambandið íhugar að banna félögum alfarið að gera þetta
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Zidane hvattur til að taka við United

Zidane hvattur til að taka við United
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Parið vakti athygli allra í gær – Sjáðu hvað þau gerðu meðan heimurinn horfði

Parið vakti athygli allra í gær – Sjáðu hvað þau gerðu meðan heimurinn horfði
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Úr dönsku úrvalsdeildinni í Vestra

Úr dönsku úrvalsdeildinni í Vestra
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Xavi fundaði með Barcelona í dag

Xavi fundaði með Barcelona í dag
433Sport
Í gær

Væntanlegur stjóri Liverpool er harðhaus – Gerði Simeone trylltan en óttaðist ekkert

Væntanlegur stjóri Liverpool er harðhaus – Gerði Simeone trylltan en óttaðist ekkert
433Sport
Í gær

KFA staðfestir komur Þórðar Ingasonar

KFA staðfestir komur Þórðar Ingasonar