Það voru tíðindi úr Hafnafirði í gær þegar greint var frá því að Jón Rúnar Halldórsson, væri hættur sem formaður knattspyrnudeildar FH. Hann hefur unnið magnað starf fyrir FH.
Jón Rúnar hefur verið í stjórnunarstörfum hjá FH til fjölda ára og leitt ótrúlega uppbyggingu félagsins, hann hefur búið til stórveldi.
Jón Rúnar hefur breytt umhverfi í fótboltanum á Íslandi, hann hefur gert kröfur og sett markið hátt. Aðrir hafa reynt að fylgja eftir. Eftir þessu hefur Logi Geirsson, fyrrum landsliðsmaður í handbolta tekið eftir. Logi er harður FH-ingur.
,,Þessi maður er One Man Army. Dýrka svona töffara sem þurfa engan her með sér,“ skrifar Logi á Twitter.
Jón hefur að einhverju leyti verið umdeildur, hann hefur stundum gengið hart fram en iðulega með hagsmuni FH og fótboltans á Íslandi að leiðarljósi.
,,Ljón spyr ekki kindur álits. Hugsjóna og keppnismaður og mikill söknuður af þér í framlínunni. Þú hefur unnið magnað starf og einstakan árangur fyrir félagið (fólkið) og verður í sögubókunum. Takk ♥️ JR“
Jón hefur ekki bara breytt fótboltanum á Íslandi því hann er faðir tveggja vinsælustu tónlistarmanna Íslands, það eru þeir bræðir Jón og Friðrik Dór Jónssynir.
Þessi maður er One Man Army. Dýrka svona töffara sem þurfa engan her með sér. Ljón spyr ekki kindur álits. Hugsjóna og keppnismaður og mikill söknuður af þér í framlínunni. Þú hefur unnið magnað starf og einstakan árangur fyrir félagið (fólkið) og verður í sögubókunum. Takk ♥️ JR pic.twitter.com/gIiWkEzBvw
— Logi Geirsson (@logigeirsson) February 21, 2019