Arnór Ingvi Traustason, kantmaður Malmö varð faðir í fyrsta sinn í gær þegar unnusta hans, Andrea Röfn Jónsdóttir eignaðist stúlku.
Arnór gat sökum þess ekki ferðast með liði sínu, Malmö til Lundúna þar sem liðið mætir Chelsea í kvöld.
Óvíst er með þáttöku Arnórs í seinni leik liðanna í Evrópudeildinni, Chelsea vann fyrri leikinn í Svíþjóð 2-1. Þar var Arnór í byrjunarliðinu.
Uwe Rösler, þjálfari Malmö var óvíss með þáttöku Arnórs en hann birti mynd af því þegar hann kom til Lundúna í dag.
Arnór verður því klár í slaginn en hann og Andrea höfðu lengi beðið eftir stúlkunni en Andrea gekk 11 daga fram yfir settan dag.