Kristján Flóki Finnbogason mun ekki ganga í raðir pólska liðsins Arka Gdynia eins og búist var við.
Þetta staðfesti hann í samtali við Mbl.is í dag en Kristján féll á læknisskoðun og fer ekki til félagsins.
Kristján er samningsbundinn liði Start í Noregi en hann hefur þó enn áhuga á að komast annað.
,,Ég er búinn að vera að glíma við ökklameiðsli síðan í landsliðsverkefninu í janúar síðastliðinn og þeir voru ekki tilbúnir að taka sénsinn á því, svo þetta gengur ekki í gegn. Þeir eru á miðju tímabili og leist ekki á útlitið á ökklanum mínum,“ sagði Kristján við Mbl.is.
„Þetta hefði verið frábært tækifæri fyrir mig, en ég finn eitthvað annað í staðinn.“
„Ég á enn tvö ár eftir af samningi mínum við Start. Ég þarf að taka það samtal með þjálfaranum og komast að einhverri niðurstöðu varðandi það. Markmiðið er að koma sér burt frá Start og í sterkari deild.“