Þeir sem voru að horfa á Real Madrid tapa fyrir Girona á heimavelli voru nokkuð hissa þegar Gylfi Þór Sigurðsson, besti knattspyrnumaður Íslands fór að lýsa leiknum.
Vinir Gylfa eru að steggja hann en Gylfi mun giftast Alexöndru Helgu Ívarsdóttir í sumar. Gylfi byrjaði síðari hálfleikinn og var áhorfendum nokkuð brugðið.
Gylfi er í fríi með Everton um helgina en liðið er úr leik í enska bikarnum, hann fékk því stutt frí hér á landi.
Vinir Gylfa gripu tækifærið og eru að láta hann fíflast út um allan bæ. Kristján Óli Sigurðsson, var einn þeirra sem hlustaði á Gylfa.
Kristján er einn virtasti knattspyrnurýnir landsins. ,,Gylfi Sig er ekki að fara að vinna sem lýsandi í sjónvarpi í náinni framtíð,“ sagði Kristján um málið.
Hörður Magnússon var að lýsa leiknum en Gylfi færði honum Everton treyju. ,,Ég þarf að taka við þessu, þú hefur aldrei spilað á þessu leveli,“ sagði Gylfi léttur og tók við stjórninni.
Gylfi Sig er ekki að fara að vinna sem lýsandi í sjónvarpi í náinni framtíð.
???— Kristján Óli Sigurðsson (@kristjanoli) February 17, 2019
Gylfi Sig er ekki að fara að vinna sem lýsandi í sjónvarpi í náinni framtíð.
???— Kristján Óli Sigurðsson (@kristjanoli) February 17, 2019