fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
433Sport

Ást á ensku tuðrusparki: Þetta eru liðin sem íslenskir íþróttafréttamenn styðja

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 15. febrúar 2019 22:00

Hafliði Breiðfjörð heldur með Liverpool en samstarfsfélagi hans á Fótbolta.net, Elvar Geir, heldur með með Manchester United.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslenskt íþróttaáhugafólk á flest sitt lið í enskum fótbolta, íslenskir íþróttafréttamenn eru þar engin undantekning. Íslenskir íþróttafréttamenn endurspegla í raun landslagið í þjóðfélaginu, flestir hallast að rauða litnum og skiptast jafnt á milli stórliðanna á Englandi, Manchester United og Liverpool.

30 íþróttafréttamenn eru skráðir í samtök íþróttafréttamanna en með krókaleiðum var hægt að finna út úr því með hvaða liðum á Englandi 28 einstaklingar halda. Ekki var hægt að grafa upp hvaða liPáll Hilmar Ketilsson hjá Víkurfréttum og Ívar Benediktsson á Morgunblaðinu styðja.

Skærasta stjarnan heldur með United
Manchester United, sem hefur unnið efstu deild á Englandi oftast, á ellefu stuðningsmenn í röðum íþróttafréttamanna á Íslandi. Helst ber þar að nefna Guðmund Benediktsson, einn frægasta núlifandi Íslendinginn. Þá hefur Arnar Björnsson ekki náð sínu í gegn í uppeldinu því dóttir hans, Kristjana Arnarsdóttir, heldur með United, Arnar er á öðrum báti. Þá er foringinn sjálfur, Henry Birgir Gunnarsson, stuðningsmaður rauðu djöflanna. Stuðningsmenn United hafa lifað í vonleysi eftir að Sir Alex Ferguson hætti en Guðmundur Hilmarsson á Morgunblaðinu er einn af þeim sem trúa að Ole Gunnar Solskjær geti fært stuðningsmönnum félagsins von í brjósti.

Bítlaborgin heillar marga
Það eru ellefu í röðum íþróttafréttamanna sem halda með Liverpool, Bítlaborgin heillar jafn marga og United. Liverpool er líka sögufrægt félag sem var afar sigursælt á árum áður, líklegt er að titlarnir fari að koma aftur undir stjórn Jurgens Klopp. Hörður Magnússon, sem hefur verið vinsæll í starfi til fjölda ára, heldur með Liverpool. Magnús Már Einarsson, sem er manna fróðastur um leikinn fagra, heldur einnig með Liverpool. Stuðningsmenn Liverpool hafa gjarnan mikla ástríðu fyrir félagi sínu, þeir eru vongóðir um að 29 ára eyðimerkurganga í efstu deild Englands taki enda í ár.

Einir á báti
Fimm íþróttafréttamenn á Íslandi eru einir á báti, þannig hefur Arnar Björnsson alla tíð haldið með Leeds, það hefur oftar en ekki tekið á, en á síðustu árum hefur liðið verið í vandræðum. Víðir Sigurðsson, sem er afar virtur blaðamaður og hefur lengi verið í bransanum, heldur með Derby. Einar Örn Jónsson á RÚV styður Arsenal og Andri Yrkill Valsson styður Newcastle. Óskabarn þjóðarinnar, Haukur Harðarson og Edda Sif Pálsdóttir , urðu svo fyrir áhrifum Eiðs Smára Guðjohnsen og styður Chelsea.

Gummi Ben heldur með Manchester United

Manchester United:
Henry Birgir Gunnarsson (Sýn)
Guðmundur Benediktsson (SÝN)
Tómas Þór Þórðarson (SÝN)
Elvar Geir Magnússon (Fótbolti.net)
Guðmundur Hilmarsson (Morgunblaðið)
Hörður Snævar Jónsson (433.is)
Ingvi Þór Sæmundsson (Fréttablaðið)
Kristjana Arnarsdóttir (RÚV)
Sindri Sverrisson (Morgunblaðið)
Ástrós Ýr Eggertsdóttir (Manchester United)
Kristján Jónsson (Morgunblaðið)

Edda Sif, styður Chelsea, líklega hefur Eiður Smári Guðjohnsen eitthvað með það að gera. Hann lék lengi vel fyrir félagið.

Liverpool:
Bjarni Helgason (Morgunblaðið)
Guðjón Guðmundsson (Sýn)
Hafliði Breiðfjörð (Fótbolt.net)
Hörður Magnússon (Sýn)
Magnús Már Einarsson (Fótbolti.net)
Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson (Liverpool)
Valur Páll Eiríksson (RÚV)
Kristinn Páll Teitsson (Fréttablaðið)
Hjörvar Ólafsson (Fréttablaðið)
Eiríkur Stefán Ásgeirsson (Sýn)
Óskar Ófeigur Jónsson (Sýn)

Haukur Harðarson er Chelsea maður.

Chelsea:
Haukur Harðarson (RÚV)
Edda Sif Pálsdóttir (RÚV)

Leeds:
Arnar Björnsson (Sýn)

Arsenal:
Einar Örn Jónsson (RÚV)

Newcastle:
Andri Yrkill Valsson (Morgunblaðið)

Derby County:
Víðir Sigurðsson (Morgunblaðið)

Gamli skólinn: Guðmundur Hilmarsson á Morgunblaðinu, heldur með Manchester United
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Byrjunarlið Vals og FH: Markmannsbreyting hjá Hafnfirðingum – Gylfi byrjar gegn uppeldisfélaginu

Byrjunarlið Vals og FH: Markmannsbreyting hjá Hafnfirðingum – Gylfi byrjar gegn uppeldisfélaginu
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Ten Hag mun lækka duglega í launum verði hann áfram á næstu leiktíð

Ten Hag mun lækka duglega í launum verði hann áfram á næstu leiktíð
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Breytingar á leikstöðum í Bestu deildinni – FH spilar heimaleik á Ásvöllum

Breytingar á leikstöðum í Bestu deildinni – FH spilar heimaleik á Ásvöllum
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Erling Haaland áfram meiddur

Erling Haaland áfram meiddur
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Fylkir kaupir Sigurberg frá Stjörnunni

Fylkir kaupir Sigurberg frá Stjörnunni
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Eyðir hverri einustu mynd eftir að hafa verið fitusmánuð fyrir framan alþjóð – Unnusti hennar er heimsfrægur

Eyðir hverri einustu mynd eftir að hafa verið fitusmánuð fyrir framan alþjóð – Unnusti hennar er heimsfrægur