Spjallforitið, WhatsApp er krabbamein fyrir knattspyrnustjóra að mati Alan Pardew. Hann segir leikmenn spjalla þar saman öllum stundum, um allt sem gerist hjá félaginu.
Pardew segir að forritið sé slæmt fyrir stjóra, þegar leikmenn fari af æfingasvæðinu haldi samræður um það sem er í gangi áfram.
,,Núna þegar leikmenn fara á æfingasvæðinu, þá eru þeir ekkert að fara neitt lengra en á WhatsApp. Þeir spjalla saman og eitra fyrir þér í gegnum allan hópinn, fá allan með,“ sagði Pardew.
,,Þú kemur inn á svæðið daginn eftir og það er skrýtið andrúmsloft, það hafa komið upp mál og útkoman varð allt önnur en hún átti að verða, út af svona spjalli.“
,,Þú ræður ekkert við þetta, ef þú reynir að gera eitthvað þá verða vandamálin bara fleiri. Eldi leikmenn og þeir með vesenið, hafa meiri völd í klefanum með WhatsApp.“