Mark Bosnich, fyrrum leikmaður Manchester United, telur að Paul Pogba sé að reyna allt til að komast burt frá félaginu.
Bosnich er ekki sannfærður um það að Frakkinn sé meiddur og gefur í skyn að hann sé að gera sér upp meiðsli og bíður eftir janúar.
,,Þetta hljómar ekki vel. Það er eins og hann sé að reyna að neyða félagið í að hleypa sér burt,“ sagði Bosnich.
,,Ef það er niðurstaðan þá ætti United að taka ákvörðun strax. Það skiptir ekki máli hver leikmaðurinn er, þú hefur ekki efni á að hafa hann á bekknum í 4-5 mánuði.“
,,Ef þetta er svona þá er engin önnur leið en að snúa við og reyna að fá besta verðið fyrir hann.“