Það fór fram stórleikur í ensku úrvalsdeildinni í kvöld er Manchester City og Manchester United áttust við.
Leikið var á heimavelli City og voru meistararnir taldir sigurstranglegri fyrir leikinn.
United vann þó óvæntan útisigur en þeir Marcus Rashford og Anthony Martial skoruðu mörk liðsins í 2-1 sigri.
Seint í leiknum ætlaði Fred, miðjumaður United, að taka horn en átt í verulegum vandræðum með það.
Stuðningsmenn City köstuðu ýmsum smáhlutum í Brasilíumanninn sem þurfti að labba burt.
Þetta má sjá hér.