Það hefur ekkert gengið hjá liði Arsenal síðustu vikur en liðið tapaði 2-1 gegn Brighton á fimmtudag.
Það var níundi leikur Arsenal í röð án sigurs en síðasti sigurleikur liðsins í úrvalsdeildinni kom þann 6. október.
David Luiz tryggði liðinu þá 1-0 heimasigur á Bournemouth og var ansi kokhraustur eftir leik.
Luiz sagði við blaðamenn að Arsenal gæti unnið deildina á tímabilinu eftir sigurinn og missti sig aðeins.
Eftir þau ummæli hefur gengi Arsenal versnað verulega og er liðið 24 stigum á eftir toppliði Liverpool.
Arsenal er einnig 10 stigum frá fjórða sætinu og aðeins fimm stigum frá fallsæti.