Brendan Rodgers hefur skrifað undir nýjan fimm ára samning við Leicester og hækkar laun sín hressilega. Félagið ákvað að bjóða honum nýjan samning eftir að Arsenal sýndi honum áhuga.
Arsenal gat keypt Rodgers frá Leicester á 14 milljónir punda en hann kaus að vera áfram hjá Leicester.
Ekki er ár síðan að Rodgers tók við Leicester en liðið situr í öðru sæti deildarinnar og hefur Rodgers breytt leikstíl liðsins mikið.
Varnarleikur liðsins er magnaður eins og tölfræðin, sannar hér að neðan. Besta vörn Englands.