Enska götublaðið Mirror fullyrðir að Manchester United muni í janúar reyna að fá Christian Eriksen frá Tottenham.
Eriksen er á útsölu í janúar, annars fer hann frítt frá Tottenham næsta sumar. Eriksen vill ekki gera nýjan samning við Tottenham og því er félagið í vondri stöðu.
Eriksen er 27 ára gamall og vill betri laun en Tottenham er tilbúið að borga honum. Hann er þó sagður vilja fara til Ítalíu eða Spánar.
United skoðaði þann möguleika að fá Eriksen í sumar en þá vildi hann ekki fara til United, ef ekkert betra býðst gæti hann tekið skrefið til Manchester.
Eriksen er meðvitaður um það að United gæti tvöfaldað laun hans en hann er í dag með 80 þúsund pund á viku.