John Terry, einn allra besti leikmaður í sögu Chelsea, sneri aftur á Stamford Bridge í kvöld.
Terry var lengi fyrirliði Chelsea en hann var allan sinn feril samningsbundinn félaginu fyrir utan stutt stopp hjá Aston Villa.
Terry var í kjölfarið ráðinn aðstoðarþjálfari Villa og vinnur þar með Dean Smith í dag.
Hann er þó enn í guðatölu hjá stuðningsmönnum Chelsea og fékk frábærar móttökur í London.
Terry vann allt mögulegt sem leikmaður hjá Chelsea líkt og stjóri liðsins, Frank Lampard.