Lionel Messi, leikmaður Barcelona, hefur hjálpað Alisson Becker, markverði Liverpool, mikið á ferlinum.
Alisson greinir sjálfur frá þessu en hann hefur mætt Messi með Roma, Liverpool og brasilíska landsliðinu.
Messi er af mörgum talinn besti leikmaður heims og er það ávallt áskorun að mæta honum á velli.
,,Þegar við spilum með og gegn bestu leikmönnunum þá getum við aðeins orðið betri,“ sagði Alisson.
,,Messi hefur hjálpað mér mikið! Gegn honum hef ég upplifað nokkur af bestu augnablikum ferilsins.“