Anthony Martial átti ekki sinn besta leik í gær er Manchester United spilaði við Aston Villa.
Leikið var á Old Trafford í ensku úrvalsdeildinni en United þurfti að sætta sig við 2-2 jafntefli.
Victor Lindelof skoraði annað mark United í leiknum en það fyrra var sjálfsmark frá Tom Heaton.
Martial fær nú að heyra það á samskiptamiðlum fyrir að sýna lítinn sem engan metnað.
Hann er kallaður latur af stuðningsmönnum United en Frakkinn virtist ekki nenna að vera í boltanum.
Dæmi um það má sjá hér.
Anthony Martial’s movement yesterday against Aston Villa was absolutely horrendous. Ice cold laziness 🤯 pic.twitter.com/A66ZZmNjVE
— Red Devil Bible (@RedDevilBible) 2 December 2019