Arsenal leitar sér að knattspyrnustjóra en Unai Emery var rekinn úr starfi á föstudag, Freddie Ljungberg stýrir liðinu tímabundið.
Enskir miðlar segja frá því í dag að Arsenal hafi rætt við Leicester, varðandi Brendan Rodgers. Ekki er talið líklegt að Arsenal fái hann.
Rodgers er með klásúlu í samningi sínum við Leicester, það kostar 14 milljónir punda að kaupa hann út.
Rodgers hefur unnið afar gott starf hjá Leicester eftir að félagið fékk hann frá Celtic, skref til Arsenal á þessum tímapunkti ku ekki heilla.
Leicester er á miklu betri stað en Arsenal og Rodgers gæti því viljað klára tímabilið með Leicester og skoðað næsta skref í sumar.