fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
433Sport

Sjáðu myndina sem De Gea birti – Gefur mikið í skyn

Victor Pálsson
Sunnudaginn 15. desember 2019 19:19

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margir stuðningsmenn og leikmenn Manchester United voru ósáttir eftir leik liðsins við Everton í dag.

Leikið var á Old Trafford en viðureignin endaði með 1-1 jafntefli eftir að Everton hafði komist yfir.

Fyrsta mark leiksins var skráð sjálfsmark á Victor Lindelof en það seinna skoraði Mason Greenwood fyrir heimamenn.

Það er kvartað yfir því að mark Everton hafi ekki átt að standa vegna brots sem átti sér stað stuttu áður.

Dominic Calvert-Lewin er ásakaður um að hafa brotið á David de Gea, markmanni United, áður en boltinn fór í netið.

De Gea birti sjálfur Twitter-færslu í kvöld þar sem hann gefur sterklega í skyn að um brot hafi verið að ræða.

Hana má sjá hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Upptaka af lýsandanum fer eins og eldur í sinu – Hlustaðu á hvað hann gerði í beinni

Upptaka af lýsandanum fer eins og eldur í sinu – Hlustaðu á hvað hann gerði í beinni
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Ekki komið til tals að reka Sean Dyche

Ekki komið til tals að reka Sean Dyche