Wayne Rooney, goðsögn Manchester United, stefnir á að spila í ensku úrvalsdeildinni á ný.
Rooney er 34 ára gamall en hann hefur gert samning við Derby í næst efstu eild Englands.
Rooney vill koma Derby aftur upp í úrvalsdeildina og spila með liðinu þar.
,,Mér leið eins og ég gæti enn spilað þar hjá Everton en það voru aðrir sem tóku ákvörðun,“ sagði Rooney.
,,Nú stefni ég að koma Derby aftur í úrvalsdeildina og vonandi hjálpa þeim þar.“
,,Ryan Giggs gat spilað nálægt fertugsaldri og Gareth Barry vill ennþá gera það fertugur.“