Bardagamaðurinn Khabib Nurmagomedov hvetur Cristiano Ronaldo til að leggja skóna á hilluna bráðlega.
Ronaldo er 34 ára gamall í dag en hann er enn á fullu með ítalska stórliðinu Juventus.
Khabib telur að það sé sniðugt fyrir Ronaldo að fara að kalla þetta gott.
,,Enginn mun lifa að eilífu svo það er mikilvægt að hætta á réttum tíma,“ sagði Khabib.
,,Hversu gamall er Ronaldo? 34? 35? Á þessum aldrei þá er hann ekki í eins góðu standi og með sama viðbragðstíma.“
,,Það skiptir ekki máli hvort það sé Cristiano eða Khabib, fólk mun taka sætið af þér. Mitt ráð til hans er að hætta á réttum tíma.“
,,Ef þú gerir það ekki þá ertu eftir á, það verða yngri og hungraðari sigurvegarar.“