Leeds mistókst að komast aftur á toppinn eftir svakalegan leik gegn Cardiff í næst efstu deild Englands í kvöld.
Leeds komst í 3-0 á heimavelli gegn Cardiff en gestirnir náðu að koma til baka og lokastaðan 3-3 á Elland Road.
Eitt af mörkum Cardiff kom eftir stoðsendingu Lee Tomlin sem var líklega ein sú besta á árinu ef ekki sú besta.
Robert Nesta Glatzel jafnaði metin fyrir Cardiff á 87. mínútu eftir stórbrotna hælsendingu Tomlin.
Sjón er sögu ríkari.
If a player from Liverpool or Man City laid on that assist it would be begged on the news for weeks. Magic @Leetomlin10 pic.twitter.com/9QwZghdmmD
— . (@ccfcben) 14 December 2019