Pep Guardiola, bannaði leikmönnum Manchester City að mæta á jólagleði félagsins í gær. Ástæðan er fyllerí þeirra fyrir ári síðan.
Þegar leikmenn City mættu á jólagleðina á síðasta ári, þá fóru nokkrir leikmenn út á lífið eftir það.
Þeir voru á næturlífinu fram undir morgun en æfing hófst svo klukkan 10:00, margir af þeim voru illa sofnir og þreyttir.
Guardiola hefur horft upp á City kasta frá sér möguleika á Englandsmeistaratitili síðustu vikur, hann vildi því engan gleðskap.