Gennaro Gattuso er nýr stjóri Napoli á Ítalíu en félagið staðfesti þessar fregnir í kvöld.
Gattuso var síðast hjá AC Milan og náði ágætis árangri áður en hann var látinn fara eftir síðasta tímabil.
Ítalinn lék einnig með Milan sem leikmaður og mun þetta skref ekki fara vel í alla.
Carlo Ancelotti var rekinn frá Napoli í gær þrátt fyrir 4-0 sigur í Meistaradeildinni á Genk.
Napoli situr í 7. sæti í deild eftir 15 leiki en er komið í 16-liða úrslit í deild þeirra bestu.